Drafnarsteinn skal leikskólinn heita

Sameinaður leikskóli Drafnarborgar og Dvergasteins í Vesturbænum hefur fengið nýtt nafn að undangenginni nafnasamkeppni meðal foreldra og starfsfólks.



44 nöfn bárust í samkeppnina og fór valnefnd yfir þær allar. Nafnið Drafnarsteinn fékk flest atkvæði nefndarinnar sem skipuð var stjórnendum skólans, fulltrúum starfsfólks, foreldra og skóla- og frístundasviðs.

Leikskólarnir Drafnarborg og Dvergasteinn sameinuðust 1. júlí 2011 og þar dvelja um 122 börn.



Börnum og starfsfólki í Drafnarsteini er óskað til hamingju með nýja nafnið.