Skráning í Vinnuskólann er hafin
Skráning í sumarstörf hjá Vinnuskóla Reykjavíkur hófst í gær. Foreldrar nemenda skrá þá í gegnum Rafrænu Reykjavík , líkt og í fyrra, undir fyirsögninni "Atvinna hjá Reykjavíkurborg." Skráningarfrestur er til föstudagsins 17. maí.
Öllum nemendum úr 9. og 10. bekkjum grunnskóla í Reykjavík býðst starf hjá Vinnuskólanum. Nemendur úr 8. bekk eiga ekki kost á starfi í sumar. Vinnutímabilin í sumar verða tvö, þrjár vikur hvort.
Búist er við að um 1600 nemendur komi til starfa í Vinnuskólanum í sumar. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar vegna skráningar má finna á heimasíðu Vinnuskólans.