Íbúar kusu verkefni sem fegra og bæta Breiðholt

Íbúakosningum um verkefni í hverfum Reykjavíkur lauk á miðnætti 11. apríl. Alls kusu 6.076 en gild atkvæði voru 5.732. 

Kjörsókn í borginni var alls 6,3%.  Hæst var hún á Kjalarnesi þar sem 12,4% íbúa kusu, næst hæst í Hlíðum þar sem 8,5% íbúa kusu en kjörsókn í Grafarholti og Úlfarsárdal og Vesturbæ mældist 8,0%. Lægst var kjörsókn í Breiðholti þar sem hún var 5,0%. 

Athygli vekur að fleiri konur kjósa í kosningunum en karlar. Á það við um öll hverfin í borginni en á Kjalarnesi kjósa 15,6% kvenna á móti 9,5% karla og í Hlíðum er hlutfallið 10,1% á móti 6,8%. 

Íbúar kusu 111 verkefni til framkvæmda, þar af mörg meðalstór, en hugmyndir að öllum verkefnunum koma frá íbúum í hverfum borgarinnar. Kosningarnar eru bindandi fyrir borgina sem mun framkvæma öll verkefnin á þessu ári og því næsta.  

Breiðhyltingar kusu 14 verkefni en kostnaður við framkvæmdir á þeim verður 44.5 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Breiðholti  var 817 og kjörsókn 5%. Skipting á milli kynja var nokkuð jöfn í Breiðholti en þar kusu 5,3% kvenna  á móti 4,6% karla. 

Meðal stórra verkefna í Breiðholti á þessu ári verða: 

Lagfæra göngustíga í Efra Breiðholti. Kostnaður 10 milljónir. 

Setja bekki og ruslastampa á ýmsa staði í Seljahverfi. Kostnaður 4 milljónir. 

Lagfæra skólalóð Breiðholtsskóla. Kostnaður 5 milljónir. 

Bæta skíðaaðstöðu í Seljahverfi með nestisbekkjum o.fl. Kostnaður 5 milljónir. 

Bæta aðgengi að tjarnarsvæði í miðju Seljahverfi. Kostnaður 4 milljónir.