Íbúar kusu verkefni sem fegra og bæta Grafarvog
Íbúakosningum um verkefni í hverfum Reykjavíkur lauk á miðnætti 11. apríl. Alls kusu 6.076 en gild atkvæði voru 5.732.
Kjörsókn í borginni var alls 6,3%. Hæst var hún á Kjalarnesi þar sem 12,4% íbúa kusu, næst hæst í Hlíðum þar sem 8,5% íbúa kusu en kjörsókn í Grafarholti og Úlfarsárdal og Vesturbæ mældist 8,0%. Lægst var kjörsókn í Breiðholti þar sem hún var 5,0%.
Athygli vekur að fleiri konur kjósa í kosningunum en karlar. Á það við um öll hverfin í borginni en á Kjalarnesi kjósa 15,6% kvenna á móti 9,5% karla og í Hlíðum er hlutfallið 10,1% á móti 6,8%.
Íbúar kusu 111 verkefni til framkvæmda, þar af mörg meðalstór, en hugmyndir að öllum verkefnunum koma frá íbúum í hverfum borgarinnar. Kosningarnar eru bindandi fyrir borgina sem mun framkvæma öll verkefnin á þessu ári og því næsta.
Grafarvogsbúar kusu 10 verkefni en kostnaður við framkvæmdir á þeim verður 40,2 milljónir. Fjöldi atkvæða í Grafarvogi var 816 og kjörsókn var 5,4%. Skipting á milli kynja var nokkuð jöfn en alls kusu 5.8% kvenna á móti 5% karla.
Meðal verkefna í Grafarvogi á þessu ári verða.
Leggja göngu/hjólastíg meðfram Gufuneskirkjugarði v. Borgarveg. Kostnaður 14 milljónir.
Malbika malarstíg frá Hamrahverfi að Rimaflöt/Gufunesvegi. Kostnaður 10 milljónir
Gróðursetja til skjóls á opnum svæðum í Grafarvogshverfi. Kostnaður 3 milljónir.