Íbúar kusu verkefni sem fegra og bæta Háaleiti og Bústaði
Íbúakosningum um verkefni í hverfum Reykjavíkur lauk á miðnætti 11. apríl. Alls kusu 6.076 en gild atkvæði voru 5.732.
Kjörsókn í borginni var alls 6,3%. Hæst var hún á Kjalarnesi þar sem 12,4% íbúa kusu, næst hæst í Hlíðum þar sem 8,5% íbúa kusu en kjörsókn í Grafarholti og Úlfarsárdal og Vesturbæ mældist 8,0%. Lægst var kjörsókn í Breiðholti þar sem hún var 5,0%.
Athygli vekur að fleiri konur kjósa í kosningunum en karlar. Á það við um öll hverfin í borginni en á Kjalarnesi kjósa 15,6% kvenna á móti 9,5% karla og í Hlíðum er hlutfallið 10,1% á móti 6,8%.
Íbúar kusu 111 verkefni til framkvæmda, þar af mörg meðalstór, en hugmyndir að öllum verkefnunum koma frá íbúum í hverfum borgarinnar. Kosningarnar eru bindandi fyrir borgina sem mun framkvæma öll verkefnin á þessu ári og því næsta.
Í Háaleiti og Bústöðum voru 14 verkefni kosin til framkvæmda en kostnaður við þau verður 33.3 milljónir. Fjöldi atkvæða í Háaleiti og Bústöðum var 673 og kjörsókn 5,8%. Skipting á milli kynja var nokkuð jöfn en 6,1% kvenna kaus á móti 5,6% karla.
Meðal stórra verkefna í Háaleiti og Bústöðum í ár verða:
Endurbæta núverandi leiksvæði í Grundargerðisgarði. Kostnaður 8 milljónir.
Lýsa stíg sunnan Miklubrautar, milli Kringlu og Háaleitisbrautar. Kostnaður 3.5 milljónir.
Gróðursetja tré meðfram sunnanverðum Bústaðavegi. Kostnaður 3 milljónir.
Fegra umhverfi og setja upp borðbekki austan Réttarholtsskóla. Kostnaður 3 milljónir.