Íbúar kusu verkefni sem fegra og bæta Laugardalshverfi

Íbúakosningum um verkefni í hverfum Reykjavíkur lauk á miðnætti 11. apríl. Alls kusu 6.076 en gild atkvæði voru 5.732. 

Kjörsókn í borginni var alls 6,3%.  Hæst var hún á Kjalarnesi þar sem 12,4% íbúa kusu, næst hæst í Hlíðum þar sem 8,5% íbúa kusu en kjörsókn í Grafarholti og Úlfarsárdal og Vesturbæ mældist 8,0%. Lægst var kjörsókn í Breiðholti þar sem hún var 5,0%. 

Athygli vekur að fleiri konur kjósa í kosningunum en karlar. Á það við um öll hverfin í borginni en á Kjalarnesi kjósa 15,6% kvenna á móti 9,5% karla og í Hlíðum er hlutfallið 10,1% á móti 6,8%. 

Íbúar kusu 111 verkefni til framkvæmda, þar af mörg meðalstór, en hugmyndir að öllum verkefnunum koma frá íbúum í hverfum borgarinnar. Kosningarnar eru bindandi fyrir borgina sem mun framkvæma öll verkefnin á þessu ári og því næsta.

Í Laugardalshverfi voru 13 verkefni kosin til framkvæmda á þessu ári en kostnaður við þau verður 36.3 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Laugardal var 734 en kjörsókn þar var 5,8%. Kynjaskipting í Laugardal var mjög jöfn en 5,8% kvenna kusu á móti 5,7% karla. 

Meðal stórra verkefna í  Laugardal á þessu ári verða: 

Setja upp vatnshana við stíga í hverfinu. Kostnaður 5 milljónir. 

Setja upp leiktæki fyrir eldri börn á leiksvæði við Ljósheima. Kostnaður 4 milljónir. 

Setja borð bekki o.fl. á svæði austan Laugardalsvallar. Kostnaður 3 milljónir. 

Gróðursetja berjarunna og ávaxtatré á völdum stöðum. Kostnaður 3 milljónir.