Íbúar kusu verkefni sem fegra og bæta Hlíðarnar

Íbúakosningum um verkefni í hverfum Reykjavíkur lauk á miðnætti 11. apríl. Alls kusu 6.076 en gild atkvæði voru 5.732. 

Kjörsókn í borginni var alls 6,3%.  Hæst var hún á Kjalarnesi þar sem 12,4% íbúa kusu, næst hæst í Hlíðum þar sem 8,5% íbúa kusu en kjörsókn í Grafarholti og Úlfarsárdal og Vesturbæ mældist 8,0%. Lægst var kjörsókn í Breiðholti þar sem hún var 5,0%. 

Athygli vekur að fleiri konur kjósa í kosningunum en karlar. Á það við um öll hverfin í borginni en á Kjalarnesi kjósa 15,6% kvenna á móti 9,5% karla og í Hlíðum er hlutfallið 10,1% á móti 6,8%. 

Íbúar kusu 111 verkefni til framkvæmda, þar af mörg meðalstór, en hugmyndir að öllum verkefnunum koma frá íbúum í hverfum borgarinnar. Kosningarnar eru bindandi fyrir borgina sem mun framkvæma öll verkefnin á þessu ári og því næsta.

Í Hlíðum voru 8 verkefni kosin til framkvæmda en kostnaður við þau verður 25.1 milljón króna. Fjöldi atkvæða í Hlíðum voru 672 og kjörsókn 8,5%.  Þar kemur kynjaskipting nokkuð á óvart en 10,1% kvenna kaus á móti 6,8% karla. 

Meðal stórra verkefna í Hlíðum í ár verða: 

Endurbæta leiksvæði á Klambratúni með nýjum leiktækjum. Kostnaður 8 milljónir. 

Malbika göngustíg á Klambratúni frá aðalstíg að Flókagötu. Kostnaður 8 milljónir. 

Setja upp jóla- og eða skammdegisljós á Klambratúni. Kostnaður 3 milljónir. 

Bæta öryggi gangandi við Njálsgötu/Gunnarsbraut.Kostnaður 2 milljónir.