Íbúar kusu verkefni sem fegra og bæta Miðborgina
Kjörsókn í borginni var alls 6,3%. Hæst var hún á Kjalarnesi þar sem 12,4% íbúa kusu, næst hæst í Hlíðum þar sem 8,5% íbúa kusu en kjörsókn í Grafarholti og Úlfarsárdal og Vesturbæ mældist 8,0%. Lægst var kjörsókn í Breiðholti þar sem hún var 5,0%.
Athygli vekur að fleiri konur kjósa í kosningunum en karlar. Á það við um öll hverfin í borginni en á Kjalarnesi kjósa 15,6% kvenna á móti 9,5% karla og í Hlíðum er hlutfallið 10,1% á móti 6,8%.
Íbúar kusu 111 verkefni til framkvæmda, þar af mörg meðalstór, en hugmyndir að öllum verkefnunum koma frá íbúum í hverfum borgarinnar. Kosningarnar eru bindandi fyrir borgina sem mun framkvæma öll verkefnin á þessu ári og því næsta.
Íbúar í Miðborginni kusu 8 verkefni til framkvæmda á þessu ári en kostnaður við þau verður 22 milljónir króna. Fjöldi atkvæða í Miðborg var 507 en kjörsókn var 6,8%. Í Miðborg voru 7,9% kjósenda konur á móti 5,7% karla.
Meðal verkefna í Miðborg á þessu ári verða:
Gera leiksvæði með fjölbreyttum leiktækjum í Hljómskálagarði. Kostnaður 10 milljónir.
Lagfæra opið svæði efst við Frakkastíg með gróðursetningu. Kostnaður 3 milljónir.
Skreyta gafla á völdum húsum í miðborginni með veggjamálun. Kostnaður 2 milljónir.