Einn svartur ruslapoki gerir borgina fína
Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að taka þátt í fegrun borgarinnar helgina 20. - 21. apríl með því að tína rusl í nágrenni sínu í svarta ruslapoka. Starfsmenn borgarinnar munu sækja pokana á Degi Jarðar, mánudaginn 22. apríl.
Átakið nefnist Einn svartur ruslapoki og er á vegum samtaka um Grænan apríl og munu nokkur önnur sveitafélög á landinu einnig taka þátt. Hægt er að sækja sér svarta ruslapoka á Olísstöðvar en Olís gefur þá í tilefni hreinsunarátaksins.
Allir þurfa að taka til hendinni eftir veturinn og leggur Reykjavíkurborg metnað sinn í að búa borgina vel undir sumarið. Í svörtu ruslapokana á að fara blandaður úrgangur en garðaúrgangur er aftur á móti flokkaður sérstaklega og fer hver og einn með hann á endurvinnslustöðvar Sorpu.
Alþjóðlegur Dagur Jarðar er haldinn mánudaginn 22. apríl og verða ruslapokarnir sóttir þann dag af starfsmönnum borgarinnar. Vonast er til að íbúar í hverfum og við hverja húsagötu taki saman höndum og tíni ruslið sem kemur í ljós eftir veturinn og velji tiltekna staði þar sem pokunum er safnað saman.
Endilega sendið ljósmynd af ruslatínslunni á Facebook síðu Reykjavíkurborgar. Deilið þátttöku ykkar sem víðast og hvetjið nágranna, fjölskyldu og vini til að vera með í átakinu. Þetta yrði góð byrjun en verkefnið að fegra borgina stendur yfir alla daga.
Spáð er ágætu veðri um helgina og Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að taka þátt í Grænum apríl með þessum hætti.