Hjólastígur teygir sig í átt að Hlemmi
Vegna vinnu við nýjan upphitaðan hjóla- og göngustíg meðfram Laugavegi verður lokað tímabundið fyrir bílaumferð um beygjuakrein frá Laugavegi niður Katrínartún. Lokað verður í fyrramálið og gera má ráð fyrir að lokunin vari í tvær vikur. Rétt er að rifja upp að Katrínartún hét áður Höfðatún.
Framkvæmdirnar eru hluti af lagningu hjóla- og göngustígs frá Elliðarárósum niður á Hlemm, en búið er að leggja stærstan hluta stígsins og koma fyrir sérstökum umferðarljósum fyrir hjólreiðafólk á nokkrum stöðum á leiðinni. Stígurinn nýi teygir sig hægt og bítandi í átt að Hlemmi.
Vegna frágangs á gatnamótum Nóatúns og Laugavegar þurfti nýlega að loka Nóatúni tímabundið vegna vinnu við stíginn og verður þar opnað á ný á næstu dögum.
Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem að framkvæmdum kann að stafa og eru þeir jafnframt beðnir um að sýna aðgát við framkvæmdasvæði og virða hraðatakmarkanir.