List án landamæra í tíunda sinn
List án landamæra verður sett með opnunarhátíð í Ráðhúsinu í dag, 18. apríl, kl. 17.30. Hátíðan er afar fjölbreytt að vanda og verður dagskrá í Reykjavík, Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Fellsenda í Dölum, Akranesi, Borgarnesi, Selfossi, Húsavík, Akureyri, Ísafirði, Neskaupsstað, Fáskrúðsfirði, Seyðisfirði og á Egilsstöðum. Sýningar og uppákomur verða á alls kyns stöðum; í gömlu sláturhúsi, strætóskýli, torgi í borg sem og á hefðbundnum sýningarstöðum. Alls eru viðburðirhátíðarinnar 70 talsins og þátttakendur um 800.
Listamaður hátíðarinnar 2013 er Atli Viðar Engilbertsson. Hann er sjálfmenntaður fjöllistamaður sem hefur skrifað ljóð, leikrit og smásögur og samið tónlist auk þess að sinna myndlist. Atli sýnir ásamt listakonunni Sigrúnu Huld Hrafnsdóttur í sal Myndlistafélagsins á Akureyri.
Dagskráin á höfuðborgarsvæðinu hefst með opnunarhátíð og samsýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar flytur tónskáldið Jón Hlöðver Áskelsson frumsamið tónverk, Leikið með List án landamæra. Leikhópurinn Blood Moon flytur brot úr frumsömdu verki sínu, Regnbogaballinu, Rut Ottósdóttir og Ólöf Arnalds stíga á svið með ljóð og söng og hljómsveitin Prins Póló ásamt Tipp Topp hópnum treður upp með tónlist og fjöri. Á opnunarhátiðinni fáum við einnig að sjá hóp fólks sem mun taka þátt í smiðju sænsku samtakanna Share Music, en það eru samtök sem skipuleggja sýningar, smiðjur og námskeið í tónlist, dansi, leiklist og myndlist um allan heim. Sjá www.sharemusic.se
Í Austursal Ráðhússins sýna listamenn verk sín,m.a. Maríus Bjarki Naust, Sigga Björg Sigurðardóttir, Halldór Ásgeirsson, Karl Guðmundsson, Helgi Þórsson, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Edda Guðmundsdóttir, Einar Baldursson, Guðrún Rósalind Jóhannsdóttir, nemendur af starfsbraut FG, Ingibjörg Sæmundsdóttir, Frida Adrian(a) Martins, listafólk úr Bjarkarási og Styrktarfélagi Áss, Gylfaflöt og Ásgarði, Kamma Viðarsdóttir, Davíð Örn Halldórsson og Karl Guðmundsson.
Um helgina verða svo fleiri viðburðir; föstudaginn 19. apríl opna sýningarnar Grösugir strigar og Systralist í Þjóðminjasafninu kl. 13:30 (hálf 2) og Egill Prunner opnar sýningu í Mokka á Skólavörðustíg klukkan 15.30 (hálf 4).
Laugardaginn 20. apríl klukkan 14 (2) opna sýningarnar Lóðréttar öldur í Listasal Mosfellsbæjar þar sem þeir Helgi Þorgils Friðjónsson og Snorri Ásgeirsson leiða saman hesta sína og í Listamönnum á Skúlagötunni sýna 6 meistarar þau Ísak Óli Sævarsson, Guðrún Bergsdóttir, Hermann B. Guðjónsson, Linda Rós Lúðvíksdóttir, Ingi Hrafn Stefánsson og Gígja Thoroddsen.
Ein af nýjungum á dagskrá hátíðarinnar er svo kölluð Pop Up list. Popparar munu troða óvænt upp á List án landamæra á víð og dreif um borgina. Öllum er velkomið að taka þátt og hér er áskorun til þín: Af hverju ekki að troða upp með atriði í strætó eða á uppáhalds kaffihúsinu þínu eftir langan dag? Kannski hitta ömmu í matsalnum á Grund og leiða hópsöng, standa á steini fyrir utan IKEA og fara með gamanmál eða hvað annað sem þér dettur í hug að gera til þess að glæða menningu og gleðja á sem ólíklegustu stöðum!
Dagskrána og frekari upplýsingar má nálgast á vefnum www.listin.is og á www.listanlandamaera.blog.is sem og á síðu hátíðarinnar á facebook (http://www.facebook.com/listanlandamaera?ref=ts&fref=ts) og á heimasíðum ÖBÍ, Þroskahjálpar, BÍL, Átaks, Fjölmenntar og Hins hússins.