Barnamenningarhátíð að bresta á

Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin í þriðja sinn dagana 23. - 28. apríl 2013. Markmið hátíðarinnar er að efla menningarstarf fyrir börn og ungmenni í borginni. Hátíðin er vettvangur þar sem þátttaka barna og ungmenna er lykilatriði og lögð er áhersla á menningu fyrir börn og menningu barna- og unglinga. 

Hátíðin hefur vaxið að umfangi ár frá ári. Hún fer fram víðs vegar um Reykjavík og í öllum helstu söfnum og menningarmiðstöðum, s.s. Hörpu, Iðnó, Kjarvalsstöðum, Þjóðmenningarhúsi, Norræna húsinu og Listasafni Íslands. Gæði, fjölbreytni, jafnræði og gott aðgengi voru höfð að leiðarljósi við skipulagningu hátíðarinnar sem nær til allra listgreina og byggir á fjölbreyttum viðburðum sem börn og fullorðnir í fylgd með börnum geta sótt sér að kostnaðarlausu.

Sjá dagskrá hátíðarinnar: www.barnamenningarhatid.is.