Samkomulag um endurbætur á aðstöðu á Reykjavíkurflugvelli
Jón Gnarr borgarstjóri og Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, skrifuðu í dag undir samkomulag um endurbætur á aðstöðu fyrir farþegar og þjónustuaðila á Reykjavíkurflugvelli. Í samkomulaginu felst m.a. að Isavia taki yfir rekstur og eignarhald á núverandi flugstöð Flugfélags Íslands, að gerð verði viðskiptaáætlun fyrir nýja flugstöð og að fallið verði frá fyrri áformum um byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri.
Talin eru upp í samkomulaginu fjölmörg atriði er varða deiliskipulag á svæðinu. Samkomulagið gerir ráð fyrir að því verki verði hraðað sem kostur er svo unnt verði að hefja ráðgerðar endurbætur sem fyrst. Norðaustur/suðvestur flugbrautin verði lögð af og landið sem losnar sunnan vallarins verði skipulagt undir blandaða byggð, að flugöryggi við austur/vestur flugbrautina verði bætt m.a. með því að lækka gróður í Öskjuhlíðinni og að heimiluð verði uppsetning aðflugsljósa fyrir nákvæmnisaðflug vestan við brautarendann. Einnig er gert ráð fyrir að breytt deiliskipulag vegna aðflugsljósa verði auglýst samhliða breytingum vegna flugstöðvar og að fundin verði lausn vegna aðstöðu fyrir vélar og tæki vegna rekstrar vallarins á athafnasvæði Isavia við austanverðan völlinn.
Samkomulagið gerir einnig ráð fyrir því að endurbætt flugstöð tryggi samkeppni í flugstarfsemi og möguleika á að þjónusta fleiri en eitt flugfélag og að hún hýsi framvegis allt áætlunarflug. Einnig er samkomulag um að allri umferð herflugvéla og flugi í þágu hertengdrar starfsemi um Reykjavíkurflugvöll verði hætt nema þegar völlurinn þjónar sem varaflugvöllur og vegna öryggis- og björgunarstarfa.
Fram kemur í samkomulaginu að aðilar eru sammála um að kanna möguleika á hringtengingu strætó um Reykjavíkurflugvöll sem talin er möguleg. Mun útfærsla hennar taka mið af því hvort Reykjavíkurborg hyggst ráðast í fyllingar í Skerjafirði samkvæmt gildandi aðalskipulagi.