Skapandi síðdegi á frístundaheimilinu Selinu á Barnamenningarhátíð
Frístundaheimilið Selið í Melaskóla verður með viðburð fyrir alla fjölskylduna föstudaginn 26. apríl frá kl. 16:30 - 17:30.
Þá ætla krakkarnir að bjóða fjölskyldu og ættingjum að koma í Hátíðarsal Melaskóla þar sem barnamenningarviðburðurinn Skapandi Síðdegi í Selinu fer fram. Hin ýmsu verk eftir börnin verða til sýnis ásamt ljósmyndasýningu, skák , tónlist og ljúffengum veitingum.
Skýjaborgir, frístundaheimilið við Vesturbæjarskóla, fær góðkunna gesti í heimsókn sem ætla að vera með söngskemmtun, dansnámskeið og listasmiðju. Einnig munu þau fá kvikmyndagerðarmann í heimsókn sem mun hjálpa börnunum að búa til bíómynd eftir handriti sem þau skrifa sjálf.
Frístundaheimilið Undraland mun bjóða uppá fjölbreytt klúbbastarf og opið hús á föstudaginn þar sem menning barnanna verður allsráðandi.
Frostheimar, safnfrístund fyrir 3. og 4. bekk fá listakonuna Lilju Birgisdóttur í heimsókn en hún ætlar að vera með ljósmyndasmiðju fyrir börnin og svo verður sýning á verkum þeirra á föstudeginum 26.apríl frá 16.00 – 17.00.