Vordagar í Mjódd 22. - 27. apríl

Vordagar í Mjódd hefjast mánudaginn 22.apríl og standa fram til laugardagsins 27. apríl þar sem fyrirtæki og verslanir munu bjóða upp á tilboð og afslætti.

Síðasta vetrardag eða þann 24.apríl verður opið til kl. 21.00. Þar verður m.a tískusýning, kynningar frá Íslenskri Hollustu, happdrætti, tónlistaratriði þar sem Sessý mun syngja nokkur lög og einnig munu nemendur úr Tónlistarskóla Eddu Borg leika á hljóðfæri. Verslanir munu einnig bjóða upp á léttar veitingar.

Flökkusýning Listasafns Reykjavíkur verður hjá okkur dagana 24. og 26. apríl og eru grunn- og leikskólabörnum í Reykjavík boðið að koma og taka þátt í verkefninu. Ferðaflækja á flakki eins og sýningin nefnist er farandsýning sem hefur að geyma listaverk ásamt fræðslu og fróðleik um samtímamyndlist með áherslu á sjálfbærni.

Endilega komið við og kynnið ykkur hvað er í boði.