Börnin skipuleggja hverfið sitt
9-10 ára börn í Hlíðum og Breiðholti hafa í máli og myndum sett fram hugmyndir um hvernig þau vilja bæta hverfin sín. Sýning á hugmyndum þeirra um framtíðarskipulag í þessum hverfum hefur verið sett upp í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12 - 14 og mun standa fram yfir lok Barnamenningarhátíðar 28. apríl.
Börnin voru fengin til samráðs í skipulagsvinnu og spurð hvar þau léku sér, hvar uppáhaldsstaðurinn þeirra væri í hverfinu og hvert þau færu helst með foreldrum sínum. Börnin teiknuðu í framhaldinu upp hugmyndir sínar að betra hverfi og skrifuðu útskýringar með. Á sýningunni geta börn og gestir úr þessum hverfum og öðrum sett fram sínar hugmyndir að betra skipulagi í sínu hverfi og hengja þær upp á þar til gerðan hugmyndavegg.
Þetta skemmtilega verkefni er til komið vegna hverfisskipulagsvinnu sem hefst senn í átta borgarhlutum Reykjavíkurborgar. Þar er mikil áhersla lögð á að fá álit þeirra sem þekkja hverfin best, og verður samráð við íbúa veigamikill þáttur í skipulagsvinnunni.
Sérstaklega verður vandað til samráðsins og leitað til þeirra hópa sem sjaldnast heyrist til. Leitast verður við að fá börn úr umræddum borgarhlutum til þess að deila sýn sinni og væntingum til umhverfisins með skemmtilegum leik þar sem börn kortleggja umhverfið út frá eigin notkun.