Myndlist barna og myndlist fyrir börn út um alla borg

Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá á vegum Listasafns Reykjavíkur vítt og breitt um borgina meðan á Barnamenningarhátíð stendur 23. - 28. apríl. Fullorðnir í fylgd með börnum fá frítt inn á Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn meðan á hátíðinni stendur. Börnin á leikskólanum Sæborg sýna verk sín á Kjarvalsstöðum og börnum stendur til boða að taka þátt í listsmiðjum og fá leiðsögn um myndlist.

Kjarval og Gullmávurinn á ferð og flugi

Listasafn Reykjavíkur tekur myndlistina á ferð og flug í tilefni Barnamenningarhátíðar. Flökkusýningin Kjarval og Gullmávurinn/ Ferðalag listmálara ferðast á milli staða og boðið verður upp á lítinn leikþátt í við verk Jóhannesar S. Kjarvals. Kjarval var einn af frumherjum íslenskrar myndlistar á 20. öld og varð þjóðsagnapersóna í lifanda lífi, bæði fyrir málverkin sín, hátterni og hnyttin tilsvör. Hann sagði meðal annars: „Listina á ekki að taka of alvarlega, til þess er hún alltof alvarleg.“ Sýningin fjallar á skemmtilegan og ferskan hátt um listamanninn í lifandi samræðu. Leikþátturinn tekur um 30 mín. þar sem rætt verður um lífið og listina. Í kjölfarið geta börn og fullorðnir skoðað sýninguna. Huginn Þór Arason myndlistamaður er hugmyndasmiður sýningarinnar. Leikþátturinn er unnin í samstarfi við Ragnar Ísleif Bragason leikara.



Ferðaáætlun:

23. apríl kl. 11.00 Bókasafn Seltjarnarness- Eiðistorg

24. apríl kl. 11.00 Árbæjarsafn

25. apríl kl. 14.00 Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir

Ferðaflækja á flakki

Miðvikudag 24. apríl og föstudag 26. apríl, kl. 09.00 – 16.00

Mjódd, Álfabakka 14a

Grunn- og leikskólabörnum í Reykjavík er boðið að koma og taka þátt í leiðsögn og listsmiðju í Mjódd í Breiðholti. Farandsýning Listasafns Reykjavíkur verður staðsett í göngugötunni og taka börnin þátt í stuttri leiðsögn um sýninguna og listsmiðju að leiðsögninni lokinni. Unnið verður með endurnýttan efnivið og kannaðir verða snertifletir myndlistar og sjálfbærni.

„Maður málar bara eins og manni sýnist“ - Okkar Sæborg

Miðvikudagur 24. apríl – föstudags 3. maí, opið frá kl. 10.00 - 17.00.

Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir

Ferli sem sýnir rannsókn og uppgötvun leikskólabarna í Sæborg byggða á heimsóknum í listasöfn. Sköpunarafl barnsins og tjáning í gegnum list birtist í dularfullum ljónum, steindauðum beinagrindum og fleira. Unnið í samvinnu við myndlistarmanninn Daða Guðbjörnsson og Listasafn Reykjavíkur. Sýningin opnar 24. apríl kl. 15.00 og stendur til 3. maí.

Viðsnúningur: Nýtt útilistaverk á Klambratúni

Fimmtudag 25. apríl, kl. 13.00

Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir

Listasafn Reykjavíkur afhjúpar nýtt útilistaverk eftir Guðjón Ketilsson við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta, 25. apríl kl. 13. Verkið á í sérstöku samtali umhverfi sitt á Klambratúni og er unnið með það í huga að börn geti nýtt það í leik.

Klukkan 14:00 hefst svo lifandi leiðsögn fyrir alla fjölskylduna um flökkusýninguna Kjarval og Gullmávurinn/ Ferðalag listmálara þar sem boðið verður upp á lítinn leikþátt í tengslum við verk Jóhannesar S. Kjarvals. Sýningin fjallar á skemmtilegan og ferskan hátt um listamanninn í lifandi samræðu. Leikþátturinn tekur um 30 min. þar sem rætt verður um lífið og listina. Í kjölfarið geta börn og fullorðnir skoðað sýninguna. Unnið í samstarfi við Ragnar Ísleif Bragason leikara.

Sköpum stjörnur: Kviksjársmiðja

Laugardag 27. apríl, kl. 13.00 – 15.00

Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn

Geimþráin er forvitnileg tilfinning sem margir kannast við. Listamaðurinn Ásmundur Sveinsson hlustaði á kynjasögur úr myrkrinu í æsku og lét heillast af endalausum víðáttum og möguleikum alheimsins. Krakkar sem koma í heimsókn fá tækifæri til að skapa eigin stjörnur með því að gera sína eigin kviksjá (caleidoscope). Leiðbeinandi er Ingibjörg Sigurjónsdóttir, myndlistarmaður.



Hjólaratleikur fjölskyldunnar - Styttur Bæjarins

Daganna 23.-28. apríl, kl. 12.00 – 18.00

Harpa og Ásmundarsafn

Listasafn Reykjavíkur í samvinnu við Dr. Bæk og Hörpu býður upp á hjólaratleik um norður strandlengjuna. Leikurinn hefst við Hörpuna og líkur í höggmyndagarði Ásmundar Sveinssonar við Sigtún. Þetta er tilvalinn leikur fyrir alla fjölskylduna þar sem hjólað verður á milli nokkurra útilistaverka bæjarins. Leikurinn hefst í Hörpunni og endar í Ásmundarsafni.

Þátttökuspjöld fást í afgreiðslu Hörpu.

Hjólaleiðsögn fyrir alla fjölskylduna

Sunnudag 28. apríl, kl. 13.00 – 15.00

Harpa og Ásmundarsafn

Heiðar Kári Rannversson leiðir hjólaleiðsögn um norður-strandlengjuna og ræðir um útiverkin sem þar eru. Leiðsögninni líkur í garði Ásmundarsafns og að lokum verður dreginn verðlaunahafi úr potti ratleiksins Hjólaratleikur fjölskyldunnar - Styttur Bæjarins. Leiðsögnin hefst tímanlega kl. 13 frá Hörpunni.