Note: This news was published over two years ago.
Götur saltaðar síðasta vetrardag
Allir saltbílar eru úti til að draga úr hálku á götum og hafa þeir verið að síðan hálf fimm í morgun, segir Þorsteinn Birgisson stjórnandi hjá þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar. Einnig eru allar dráttarvélar borgarinnar á stígunum að ryðja.
Víða er hálka í borginni og hefur lögregla frá því í morgun haft uppi varnarorð til vegfarenda um að fara varlega.
Ítarefni:
Almennar upplýsingar um snjóhreinsun og hálkueyðingu í Reykjavík.