Evrópumótið í hópfimleikum haldið í Reykjavík 2014

Evrópumótið í hópfimleikum, Team-Gym, verður haldið í Reykjavík haustið 2014. Undirritun samnings þess efnis fór fram í Höfða í dag.

Fulltrúar frá Evrópsku fimleikasamtökunum UEG eru hér á landi til að skoða aðstæður og undirrita samninginn. Georges Guelzec, forseti evrópsku fimleikasamtakanna UEG, Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir formaður Fimleiksambands Íslands undirrituðu samninginn.



Mótið verður haldið í Laugardalshöll og fulltrúi RÚV undirritaði samning þess efnis að það muni sjá um útsendingar frá fimleikamótum næstu þrjú árin.



Íslendingar eru Evrópumeistarar í TEAM-GYM kvenna og stúlkna eins og flestum er kunnugt og eiga því titil að verja á mótinu. Fimleikar eru næst fjölmennasta íþróttagrein í barna- og unglingastarfi hér á landi og langfjölmennasta íþróttagreinin í mörgum bæjarfélögum.



Þetta er í fyrsta sinn sem forseti UEG heimsækir Ísland og að lokinni undirskrift hélt forsetinn og föruneyti hans í heimsókn til fimleikadeilda á höfuðborgarsvæðinu þar sem þeim gefst tækifæri til að skoða aðstöðu til fimleikaiðkunar hér á landi. Forsvarsmenn hvers félags munu sýna starfsemi sína, aðstöðu og áherslur í starfi.   Hópurinn mun heimsækja Ármann, Björk, Fjölni, Fylki, Gerplu og Stjörnuna.