Note: This news was published over two years ago.
Sumarvefur um starf og afþreyingu fyrir börn og unglinga
Eins og undanfarin ár verður nóg framboð af spennandi afþreyingu í sumar fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Sumarvefur Reykjavíkurborgar www.itr.is/sumar hefur nú verið opnaður, en þar er að finna upplýsingar um sumarstarf í Reykjavík fyrir börn á aldrinum 5 - 18 ára. Í boði verða siglingar, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið, leikjanámskeið, sumarfrístund og margt fleira.
Skráning í sumarstarf á vegum Reykjavíkurborgar hefst mánudaginn 29. apríl á Rafrænni Reykjavík.