Ráðstefnuborgin Reykjavík/Meet in Reykjavik hlýtur eftirsótt alþjóðleg markaðsverðlaun

The MICE Report er eitt útbreiddasta tímarit heims sem fjallar um funda-, hvataferða- og ráðstefnugeirann (MICE stendur fyrir Meetings, Incentive, Conference og Exhibitions). Tímaritið veitir árlega verðlaun til þeirra stofnana og fyrirtækja í þessum geira sem þykja skara framúr á sínu sviði. Í umsögn dómnefndar segir að verðlaunin séu veitt fyrir „spennandi og ferska nálgun við að markaðssetja Reykjavík sem einstakan áfangastað fyrir ráðstefnur og hvataferðir. Þrátt fyrir stuttan starfsaldur teljum við að Meet in Reykjavík keyri markaðssókn sína á hugvitsamlegan hátt .“ 



„Það er mikil viðurkenning fyrir Meet in Reykjavik að fá þessi verðlaun, því við höfum ekki starfað nema í rúmlega eitt ár“, segir Þorsteinn Örn Guðmundsson framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík. „Frá fyrsta degi höfum við sett mikinn kraft í starfsemina og höfum látið í okkar heyra mjög víða á þessum vettvangi. Hjá fyrirtækinu starfa fimm manns við að markaðssetja og kveikja áhuga á Reykjavík og raunar Íslandi öllu, sem áhugaverðum áfangastað. Meet in Reykjavik styður jafnframt tilboðsgerð fyrir stærri fundi og ráðstefnur í nánu samstarfi við aðildarfélög sín.



Að baki Meet in Reykjavík standa Reykjavíkurborg, Harpa og Icelandair Group sem kjölfestuaðilar ásamt fjölda annarra aðildarfélaga sem telur flest þau fyrirtæki sem þjónusta þennan markað eða njóta góðs af aukinni markaðassetningu á einn eða annan máta.

„Það er kröftug samkeppni á þessum markaði, því þarna eru einatt þeir gestir sem skilja eftir sig hvað mestu tekjurnar og koma að jafnaði utan háannar. Meet in Reykjavik vinnur að því að fá þessa gesti til Íslands í samvinnu við aðilarfélög sín, en þau taka síðan við og sjá um allan undirbúning, ferðir, gistingu og tilheyrandi. Við höfum þegar náð í nokkrar mjög áhugaverðar ráðstefnur og höfum stutt við tilboð í fjölmargar aðrar til viðbótar. Það er engin spurning að þessi viðurkenning The MICE Report er ákveðinn gæðastimpill á þá stefnu sem hefur verið mörkuð og á eftir að opna margar dyr fyrir okkur,“ segir Þorsteinn Örn Guðmundsson.