Note: This news was published over two years ago.
Sumardagurinn fyrsti haldinn hátíðlegur í Vesturbænum
Eins og undanfarin ár var mikið um að vera í Vesturbænum á sumardaginn fyrsta. Skrúðganga var frá Melaskóla að KR-heimilinu en þar var margt í boði fyrir unga sem aldna. Það var t.d. ýmis dagskrá á úti sviðinu, ýmis sala í gangi, þrautabrautir inni í KR- heimilinu o.m.fl. en það var Frostaskjól sem sá til þess að allt færi vel fram og skipulagði þennan góða dag. Erfitt er að segja til um fjölda en þarna voru saman komin nokkur hundruð manns, þrátt fyrir að það væri töluverður kuldi.