Óvitar á Barnamenningarhátíð í Rimaskóla

Nemendur í 7. bekk í Rimaskóla settu upp tvær sýningar á Óvitum eftir Guðrúnu Helgadóttur á nýafstaðinni Barnamenningarhátíð. Sýnt var í hátíðarsal skólans fyrir fullu húsi áhorfenda sem voru nemendur leikskóla og grunnskóla í hverfinu. Leikritið var fyrr í vetur sýnt á jólaskemmtunum Rimaskóla við mikla hrifningu.

Það var mikill heiður og ánægja fyrir alla aðstandendur sýningarinnar að höfundurinn Guðrún Helgadóttir þáði boð skólans um að vera viðstödd leiksýninguna. Hún hafði greinilega mjög gaman af sýningunni og hrósaði hinum ungu leikurum í lokin fyrir góðan leik og skýra framsögn. Eggert Arnar Kaaber leikari og leiklistarkennari skólans sá um leikgerð og leikstjórn og naut til þess dyggrar aðstoðar frá list- og verkmenntakennurum.