Vesturborg á ferðalagi með Línu langsokk

Börnin á Vesturborg hafa verið á ferð um hverfið sitt með Línu Langsokk og tekið myndir af því sem þeim þykir áhugarvert. Sýning á myndum þeirra stendur nú yfir í Norræna húsinu.

Leikskólinn Vesturborg byrjaði haustið 2012 í Comeníusarverkefni sem kallast „Pippis quest“ eða Ferðalag Línu. Verkefnið er samstarfsverkefni skóla á Íslandi, Slóveníu, Írlandi, Þýskalandi, Eistlandi og Spáni. Unnin eru verkefni þar sem Lína Langsokkur er í aðalhlutverki og kynnir sér öll löndin. Skólarnir útbúa dagbók Línu þar sem hún kynnir skóla viðkomandi lands.

Börnin á Vesturborg hafa því haft Línu með sér í daglegu starfi og tekið saman efni af netinu sem sjá má á sýningunni en húm hefur verið sett upp í Barnahelli Norræna hússins. Sýningin stendur til 5. maí.