Sköpum skemmtileg torg í borginni
Reykjavíkurborg óskar eftir hugmyndaríkum og framtakssömum einstaklingum og hópum til að taka þátt í endursköpun almenningssvæða í borginni í sumar. Þátttakendur eiga bæði að koma með hugmyndir og sjá um framkvæmd þeirra.
Völdum svæðum í borginni verður úthlutað ásamt verkefnastyrkjum til hugmyndavinnu og framkvæmda. Verkefnin geta verið allt frá einstaka viðburðum og innsetningum til hönnunar sem getur staðið í skemmri eða lengri tíma. Svæðin sem um ræðir eru svokölluð biðsvæði en það eru þau svæði sem eru í millibilsástandi hvað varðar framtíðarskipulag og notkun og því tilvalinn vettvangur til tilraunastarfsemi og prófun á nýjum hugmyndum.
Þetta er þriðja árið sem Reykjavíkurborg kallar eftir liðsinni borgarbúa og hönnuða um tímabundnar lausnir fyrir almenningssvæði og torg í borginni. Þeir sem vilja taka þátt í ár þurfa að sækja um í síðasta lagi 1. maí 2013. Á vefsvæðinu www.reykjavik.is/bidsvaedi eru nánari upplýsingar fyrir umsækjendur.
Ítarefni:
Torg í biðstöðu – Biðsvæði 2013 > www.reykjavik.is/bidsvaedi.