Úthlutanir úr Hverfissjóði Reykjavíkur 2013
Tilgangur Hverfissjóðs Reykjavíkur er að styðja við verkefni sem stuðla að eftirtöldum þáttum í hverfum borgarinnar:
- Bættu mannlífi og eflingu félagsauðs
- Fegurri ásýnd borgarhverfa
- Auknu öryggi í hverfum borgarinnar
- Samstarfi íbúa, félagasamtaka eða fyrirtækja við borgarstofnanir.
Sjá nánar í úthlutunarreglum sjóðsins.
Styrkumsóknir 2013
Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 10. júní 2013.
- Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einu eða fleiri hverfum eða almennt í borginni.
- Einstaklingar, hópar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um.
- Hámaksupphæð hvers styrks er 700.000 krónur.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á netfangið hverfissjodur@reykjavik.is
Ef ekki er hægt að senda umsókn rafrænt má senda hana til:
Þjónustuver Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14,
105 Reykjavík
merkt „Hverfissjóður Reykjavíkur“
Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri stjórnar sjóðsins Þór Steinarsson í síma 411 3023.
Um Hverfissjóð Reykjavíkur
Hverfissjóður Reykjavíkurborgar byggir á samfélagssjóði SPRON sem var færður borginni til varðveislu og úthlutunar. Í stjórn Hverfissjóðs Reykjavíkur. sitja samkvæmt skipun borgarstjóra: Ólöf Örvarsdóttir, Óskar Dýrmundur Ólafsson og Jón Halldór Jónasson.
Fyrst er veitt úr sjóðnum árið 2013.