15 ára afmæli Korpúlfa, félags eldri borgara í Grafarvogi
Fimmtudaginn 11. apríl fögnuðu fjölmargir Korpúlfar, sem eru samtök eldri borgara í Grafarvogi, 15 ára afmæli sínu með veglegri afmælisveislu í Gullhömrum.
Heimasíða félagsins www.korpulfar.is var formlega opnuð og kór félagsins Korpúlfasystkin frumfluttu lag um Korpúlfa, Korpúlfabraginn, við hátíðlega athöfn. Hápunktur hátíðarinnar var þegar Björk Vilhelmsdóttir formaður Velferðaráðs kom óvænt og tilkynnti að Korpúlfar hefðu unnið hvatningaverðlaun Velferðaráðs Reykjavíkur 2012. Þar sem Korpúlfar hefðu þróað félagsstarf í Grafarvogi með eftirtektarverðum hætti. Starf þeirra væri fyrirmynd annarra í þróun sjálfbærs félagsstarfs.