Opið hús á Korpúlfsstöðum
Korpúlfar, félag eldri borgara í Grafarvogi, verða með opið hús í húsakynnum sínum á Korpúlfsstöðum laugardaginn 4. maí næstkomandi milli kl. 13.00 - 16.00.
Til sýnis og sölu verður ýmis varningur sem Korpúlfar hafa unnið.
Milli kl. 13.00 - 17.00 verða listamenn á Korpúlfsstöðum með opnar vinnustofur sínar. Fjölbreytt flóra listamanna er á Korpúlfsstöðum sem vinna meðal annars í grafík, vatnslitun, glerlist, fatahönnun, leirlist, textíl, myndlist, margmiðlun og fleiru.
Samsýning „ÖRLÍTIÐ EGGJANDI“ verður í kjallaranum. Fagrir tónar munu óma um sali Korpúlfsstaða. Litli Bóndabærinn verður með veitingar. Gallerí Korpúlfsstaðir verður með opið og sýningu á „veggnum“.
Allir eru velkomnir.