Birtir til í rekstri Reykjavíkurborgar
„Ársreikningur Reykjavíkurborgar ber styrkri fjármálastjórn sterkt vitni. Hann sýnir að aðgerðaáætlun eigenda og stjórnenda Orkuveitu Reykjavíkur hefur gengið eftir framar vonum. Við sjáum einnig að mikill árangur hefur náðst í rekstri A-hluta. Halli A-hluta er einungis 44 mkr eða sem nemur 0,06% af heildartekjum þrátt fyrir að gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga hafi verið 2,9 milljarðar en ekki 600 milljónir eins og upphafleg fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Þetta er frábær árangur og gott dæmi um þann stöðugleika sem tekist hefur að ná hér í borginni á síðustu þremur árum“, segir Jón Gnarr borgarstjóri.
Niðurstaða A-hluta nær 2,8 milljörðum betri en 2011
Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 44 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 165 mkr á árinu og er niðurstaðan því lakari en gert var ráð fyrir, sem nemur 209 mkr. Gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga veldur þar mestu en hún nam 2.901 mkr en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 1.582 mkr. Engu að síður er rekstrarniðurstaða ársins 2.764 mkr betri en árið 2011 sem lýsir miklum viðsnúningi í rekstrinum.
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 165 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 822 mkr eða 657 mkr lakari en áætlun gerði ráð fyrir. Sé litið framhjá gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga er afkoma A-hluta í heild betri en áætlun gerði ráð fyrir upp á 1.110 mkr sem skýrist einkum af hærri útsvarstekjum en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Afkoma samstæðu nær 5,6 milljörðum betri en 2011
Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var neikvæð um 2.697 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 3.739 mkr. Rekstrarniðurstaðan er því 6.436 mkr lakari en gert var ráð fyrir. Þetta er vegna gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga hjá A-hluta og hækkunar fjármagnsliðar vegna óhagstæðrar gengis- verðlags- og álverðsþróunar, aðallega hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 17.010 mkr sem er 790 mkr lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir en 5.551 mkr betri afkoma en árið 2011. Niðurstaðan sýnir að rekstur samstæðunnar hefur styrkst verulega.
Skuldir lækka mikið og sjóðsstreymi eykst
Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok samtals 470.869 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 322.939 mkr og eigið fé nam 147.930 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 8.197 mkr.
Skuldahlutfall samstæðunnar skv. sveitarstjórnalögum hefur lækkað um heil 24 prósentustig á milli ára og fer úr 292% í 268%. Í þessu hlutfalli vega skuldir Orkuveitu Reykjavíkur mest. Í dag er skuldahlutfall samstæðunnar án Orkuveitunnar 114% en lögin kveða á um að það sé innan 150% marka. Gert er ráð fyrir að heildarskuldir samstæðunnar verði komnar undir þau mörk árið 2022. Sveitastjórnarlög gera ráð fyrir að skuldir OR séu undanþegnar viðmiði sveitarstjórnarlaga í allt að tíu ár.
Sjóðstreymi samstæðunnar hefur styrkst mikið á milli ára og er veltufé frá rekstri um 29,4 milljarðar eða 3,2 milljörðum hærra en árið 2011 og reyndist 24,5% af tekjum miðað við 22% árið 2011.
Mikill fjárhagslegur styrkur A-hluta
Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. Eiginfjárhlutfall, skuldahlutfall og sjóðstreymi samstæðunnar styrkist umtalsvert milli ára.
Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð.
Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.