Note: This news was published over two years ago.
Sauðburður er hafinn í Fjölskyldu- og húsdýragarði
Nú þegar geitburði er lokið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum heldur stuðið þó áfram í fjárhúsinu. Ærin Yggla startaði sauðburði um hádegi í dag þegar hún bar tveimur hrútum og einni gimbur. Þrílembingarnir eru stórir og stæðilegir og láta fara vel um sig ásamt Ygglu í kró í fjárhúsinu en í næstu kró fylgist hrúturinn Dropi með en virðist ekki eiga sérstakt hlutverk á þessum tímamótum.