Gott eftirlit með leiksvæðum í Reykjavík

Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur

Fyrirsögn fréttar Fréttablaðsins sem kveður á um að öryggisskoðun leiksvæða barna sé víðast í skötulíki á ekki við rök að styðjast varðandi leiksvæði í Reykjavík. Þessi frétt birtist í dag 10. maí 2013.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur annast eftirlit með öryggi á leiksvæðum barna í Reykjavík. Ef heilbrigðisfulltrúi metur ástand leiksvæðis hættulegt eru gerðar kröfur um tafarlausar úrbætur. Einnig eru gerðar kröfur um innra eftirlit á leiksvæðum samkvæmt reglugerð.

Rekstraraðilar eru ábyrgir fyrir innra eftirliti leiksvæða. Skólastjórar í grunn- og leikskólum bera ábyrgð á daglegri yfirlitsskoðun sem felst m.a. í því fjarlægja hættulega hluti, sópa stéttar og fylgjast með því að allt sé í lagi. Rekstrarskoðun umsjónaraðila skal fara fram á þriggja til fjögurra mánaða fresti þar sem viðhaldi er sinnt. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fer a.m.k. árlega í eftirlit til að framfylgja reglum um öryggi leiksvæða.

Eftirlit með öryggi barna á leiksvæðum í Reykjavík er gott þrátt fyrir að aðalskoðun fari ekki fram árlega á öllum leiksvæðum í borginni. 

Fyrirsögn Fréttablaðsins gefur lesendum því ranga mynd um ástand öryggismála á leiksvæðum og því telur Heilbrigðiseftirlitið rétt að gera grein fyrir því eftirliti sem fram fer.