Laugardalur Háaleiti fyrirmyndarstofnun
Niðurstöður úr könnuninni um valið á Stofnun ársins - Borg og bær 2013 voru kynntar, föstudaginn 24. maí. St.Rv. velur nú „Stofnun ársins – Borg og Bær“ í annað sinn.
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis var í þriðja sæti um val á Stofnun ársins hjá St.Rv. og hlýtur titilinn Fyrirmyndarstofnun 2013. Þjónustumiðstöðin var í hópi stofnanna þar sem vinna 50 starfsmenn eða fleiri. Þjónustumiðstöðin fékk einkunnina 3.914 Niðurstaða fæst með Könnun sem er gerð meðal félagsmanna SFR og annarra ríkisstarfsmanna á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað.
Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags og VR. St.Rv. bætist nú í hópinn Könnunin er ein stærsta reglulega vinnumarkaðskönnun sem framkvæmd er hér á landi og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. VR hefur útnefnt Fyrirtæki ársins í 17 ár en SFR hefur staðið fyrir vali á Stofnun ársins síðastliðin 7 ár. Með því að taka þátt í þessu samvinnuverkefni þá gefst St.Rv. þarna tækifæri til að bera saman viðhorf sinna félagsmanna og hinna sem taka þátt í verkefninu.
Við óskum starfsmönnum Laugardals og Háaleitis hjartanlega til hamingju með gott starf og að vera góð fyrirmynd.