Stóri leikskóladagurinn 7. júní

Stóri leikskóladagurinn verður haldinn í 5. sinn þann 7. júní næstkomandi. Dagurinn er að haldinn undir fyrirsögninni Ferðin til framtíðar og verður

sýning sett upp í Ráðhúsinu á fagstarfi leikskólanna í borginni en í Tjarnarbíói verður boðið upp á fyrirlestra.

Vel á fjórða tug leikskóla munu kynna hin ýmsu verkefni úr fagstarfinu, s.s. vísindaleiki, verkefni í læsi og stærðfræði, samstarfsverkefni barna og eldri borgara, verkefnið Okkar mál í Fellahverfi, myndlistarverkefni og leiðir til að efla orðaforða og hlustunarskilning barna.  Þá munu leikskólabörn koma og skemmta gestum með söng og dansi.

Leikskólar í Reykjanesbæ eru að þessu sinni gestir Reykvíkinga á Stóra leikskóladeginum.

 Allir eru velkomnir í ráðhúsið og í Tjarnarbíó til að kynna sér metnaðarfullt leikskólastarf í borginni.