Þriðjudagsgöngur í Viðey - FRESTAÐ
Þann 4. júní nk. verður farin fyrsta þriðjudagsganga sumarsins í Viðey. Gangan verður leidd af hinum margfróða og skemmtilega bókaútgefanda sem sleit barnsskónum í Viðey; Örlygi Hálfdánarsyni. Örlygur er fæddur og uppalinn í þorpinu á Sundabakka á austanverðri Viðey og þekkir eyjuna, sögu hennar og náttúru manna best. Ekki spillir fyrir að Örlygur er mikill sagnameistari, fróður og skemmtilegur.
Saga Viðeyjar er merk og spannar allt frá landnámstíð til dagsins í dag og þar hafa búið miklir áhrifamenn í sögu Reykjavíkur. Í sumar verða aukaferðir á þriðjudagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15. Kaffihúsið í hinni sögufrægu Viðeyjarstofu er opið alla daga en einnig þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í Viðey áður en leiðsögn byrjar.
Gangan hefst kl. 19.30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.
Að göngu lokinni er upplagt að tylla sér niður í Viðeyjarstofu og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið en ferjan siglir frá Viðey um kl. 22.00. Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1100,- fyrir fullorðna og kr. 550,- fyrir börn 7 – 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin.
Í Viðey er fuglalíf fjörugt á sumrin en tæplega 30 fuglategundir verpa í eyjunni. Mannlífið í Viðey er ekki síður líflegt og í sumar verður margt um að vera. Þriðjudagsgöngurnar verða að sjálfsögðu á sínum stað og við hefjum sumarið meðal annars með Bordeaux dögum í Viðeyjarstofu þar sem gestum gefst kostur á að snæða dýrindis máltíð með vínum frá þekktustu vínhúsum Bordeaux. Auk þess ætla konur að hlaupa um eyjuna fögru í hinu árlega Kvennahlaupi ÍSÍ.
Fram til septemberloka siglir ferjan oft á dag til Viðeyjar. Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.