Óveruleg breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna miðsvæðis við Vesturlandsveg - Korputorg
Óveruleg breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
Miðsvæði (M9) við Vesturlandsveg - Korputorg
Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 varðandi starfsemi á miðsvæði M9.2 við Blikastaðaveg. Breytingin felur í sér að heimil verði fjölbreyttari atvinnustarfsemi á svæðinu, s.s. vörugeymslur og netþjónabúa (gagnaver), auk verslunar og þjónustu. Breytingartillagan nær til kafla um miðsvæði í Greinargerð I.
Aðalskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulegar breytingar á aðalskipulagi.