Landspítali Háskólasjúkrahús við Hringbraut - nýtt deiliskipulag, athugasemdarfrestur er til 19. október
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut, NLSH. Tillagan tekur til skipulags framtíðaruppbyggingar fyrir Landspítala, Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, á stækkaðri lóð við Hringbraut. Samþjöppun þekkingar og vísindastofnana verður á svæðinu, þar sem sameinuð verður sú starfsemi sem fram að þessu hefur skipst upp milli Fossvogs, Hringbrautar og víðar. Á skipulagssvæðinu er ætlunin að byggja upp í nokkrum áföngum starfsemi Landspítala. Nýbyggingar munu rúma m.a. slysa- og bráðamóttöku, skurðstofur, gjörgæslu og vöknun, myndgreiningu, rannsóknarstofur, legudeildir og sjúkrahótel auk húsnæðis Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans. Með staðfestingu nýs deiliskipulags sem hér er sett fram fellur úr gildi deiliskipulag Landspítalalóðar frá 1976 með síðari breytingum. Einnig verður gerð breyting á deiliskipulaginu „Færsla Hringbrautar“ frá 2006. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Skoða tillögu
Uppdrættir 1 (PDF)
Uppdrættir 2 (PDF)
Greinargerð
Kafli 1 (PDF)
Kafli 2 (PDF)
Kafli 3 (PDF)
Kafli 4 (PDF)
Kafli 5 (PDF)
Ítarefni
Áhættugreining vegna flutninga hættulegra efna um Hringbraut (PDF)
Áhættur vegna tengibrúa (PDF)
Gróðurskýrsla - gróður á lóð Landspítala (PDF)
Greinargerð um samgöngur (PDF)
Hljóðvistargreining (PDF)
Útfærsla á þyrlupalli (PDF)
Tillögurnar, ásamt umhverfisskýrslu, liggja frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12 - 14, 1. hæð, virka daga kl. 8.20 - 16.15, frá 10. júlí 2012 til og með 19. október 2012. ATH. athugasemdarfrestur hefur verið framlengdur.
Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 19. október. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.