John Morris kjörinn skólastjóri ársins í London

John Morris, sem er skólastjórum í Reykjavík að góðu kunnur, var á dögunum kjörinn skólastjóri ársins í London og Austur Englandi. Morris hefur  undanfarin ár verið í samstarfi við reykvíska skóla og m.a. haldið námskeið í læsi fyrir skólastjóra og kennara í borginni.

John Morris hefur verið skólastjóri í Ardleigh Green grunnskólanum í suðuraustur London í rúma tvo áratugi, en vakið hefur athygli í rannsóknum sem gerðar eru í skólum um allt Bretland, hversu góðum árangri nemendur hans hafa náð í læsi og tjáningu. Skólastjórar og kennarar í Reykjavík hafa heimsótt Ardleigh Green skólann og sótt þangað fyrirmyndir í kennsluaðferðum.

John Morris hefur fyrir utan námskeið og heimsóknir í reykvíska skóla unnið að ýmsum verkefnum með grunnskólum Reykjavíkur, m.a. að verkefninu Drengir og grunnskólinn í Vesturbæjarskóla og að þróunarverkefni um gæði í skólastarfi með Laugarnesskóla, Hamraskóla og Álftamýrarskóla. Á næsta ári bætast Sæmundarskóli, Ártúnsskóli, Vogaskóli og Laugarnesskóli í hóp samstarfsskólanna sem setja sér viðmið um gæði í skólastarfi að fyrirmynd Ardleigh Green skólans.

Sjá frétt um kjör John Morris sem skólastjóra ársins í London og Austur Englandi.