Ekki venjuleg vinnubrögð að bjóða fría þjónustu
Reykjavíkurborg er stærsti þjónustuaðili heimaþjónustu í borginni.
Velferðarsvið borgarinnar telur því rétt að ítreka í kjölfar frétta um óprúttna aðila sem bjóða ókeypis heimaþjónustu að það eru ekki venjuleg vinnubrögð að hringja í fólk með slík tilboð.
Eldri borgari fær ekki þjónustu án þess að sótt hafi verið um hana og umsókn farið í gegnum ákveðið ferli. Ekki er venjan að starfsmenn borgarinnar komi án þess að búið sé að ákveða tíma.
Ef fólk er í vafa getur það hringt í þjónustumiðstöðvar eða teymistjóra í sínu hverfi. Einnig er hægt að hringja í þjónustuver Reykjavíkurborgar 4 11 11 11.