Sláttur gengur vel í Reykjavík
Grassláttur gengur samkvæmt áætlun í Reykjavík og þessa dagana er verið að fara aðra umferð af þremur yfir svæði við umferðargötur og önnur sláttutæk opin svæði. Á fjölförnum stöðum í miðborginni og í skrúðgörðum Reykjavíkurborgar er grasið slegið vikulega allt sumarið.
Sláttutímabilið leggst á 12 vikur, frá 25. maí - 20. ágúst. Þar sem slegið er þrisvar sinnum líða því minnst fjórar vikur á milli umferða. Svæðið sem slá þarf í hverri umferð er 400 hektarar.
Kostnaður við sláttinn í ár er áætlaður um 174 milljónir króna. Fyrir þremur árum var dregið úr slætti vegna breyttrar forgangsröðunar á verkefnum hjá Reykjavíkurborg og sparnaðar, en í ár og í fyrra voru fjárveitingar hækkaðar á ný til að halda uppi þjónustustigi. Sláttuumferðum við stofnbrautir, sem eru á forræði Vegagerðarinnar, hefur einnig verið fækkað á liðnum sumrum. Meðfram stofnbrautum er nú slegið þrisvar sinnum í stað fimm sinnum áður.
Stöðugt er unnið að því að bæta verklag við sláttinn og gögn sem unnið er eftir eru uppfærð reglulega. Boðleið fyrir athugasemdir frá íbúum er greið, en notast er við ábendingakerfið www.reykjavik.is/borgarland, en það er tengt verkbeiðnakerfi Framkvæmda- og eignasviðs til að tryggja skilvirka úrvinnslu ábendinga.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar á hverfastöðvum og þjónustumiðstöð annast sláttinn, auk verktaka. Reykjavíkurborg og Vegagerðin stóðu sameiginlega að útboði og lægstbjóðandi var Garðlist.
Skoða ítarlegri upplýsingar um grasslátt ásamt korti yfir sláttusvæði.