Kröftugir á lokasprettinum

Klapparstígurinn hefur tekið stakkaskiptum og nú er verið að leggja lokahönd á framkvæmdir. Starfsmenn verktaka eru kröftugir á endasprettinum og gangstéttarnar renna fram. Bílaumferð hefur verið hleypt að nýju á hluta stígsins og í næstu viku verður hann allur opinn. Stígurinn hefur verið opinn gangandi vegfarendum allan framkvæmdatímann.

Í næstu viku verður unnið við lokafrágang í Njálsgötu og smávægilegar viðbætur og breytingar svo sem að færa ljósastaur og lagfæra tröppur. Samhliða opnun fyrir umferð upp Klapparstíginn verður umferð um Vegamótastíg og Grettisgötu snúið í fyrra horf, en þar hafa verið hjáleiðir vegna framkvæmdanna.

Beðist er velvirðingar á truflun vegna framkvæmdanna og jafnframt eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi við framkvæmdasvæðið.

Kostnaður við endurgerð Klapparstígs frá Laugavegi að Skólavörðustíg er mun minni en áætlað var. Kostnaður stefnir í að verða um 100 milljónir króna, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 120 milljónum.

Fyrirhugað er að endurnýja einnig kaflann neðan Laugavegar að Hverfisgötu í svipuðum dúr og nú hefur verið gert ofan Laugavegar. Það verk er í hönnun og er stefnt að útboði eftir rúma viku. Framkvæmdir gætu þá hafist í ágúst eða september.

 

Nánari upplýsingar um þessi verk (og 130 önnur) er að finna í Framkvæmdasjá:

Endurgerð Klapparstígs ofan Laugavegar.  

Endurgerð Klapparstígs milli Laugavegar og Hverfisgötu.