Brettagarður í Laugardal verður tilbúinn fyrir haustið
Framkvæmdir eru hafnar við nýjan brettagarð í Laugardal og á hann að verða tilbúinn fyrir lok ágúst. Brettagarðurinn er um 500 fermetrar og umleikis hann kemur hljóðmön. Völlurinn sjálfur verður aflöng steypt plata á fyllingu, um 280 fermetrar, með upphækkuðum pöllum til beggja enda. Öll tæki verða fest á steyptu plötuna þannig að hægt sé að fjarlægja þau og breyta um áherslur í takt við óskir brettaáhugafólks. Brettagarðurinn nýi er staðsettur við Engjaveg vestan við knattspyrnuvöll Þróttar.
Þessa dagana er verktaki við jarðvegsvinnu. Búið er að grafa fyrir vellinum og verið að fylla með frostfríu efni. Byrjað er að byggja upp hljóðmanir.
Sjá nánar á upplýsingasíðu í Framkvæmdasjá >>> Opna síðu
Skoða yfirlitsmynd af brettagarði.