Kanna möguleika á náttúruvísindasýningu í Perlunni

Borgarráð samþykkti á fundi sínum 12. júlí að setja á laggirnar starfshóp með fulltrúum borgarinnar og mennta- og menningarmálaráðuneytis sem fái það viðfangsefni að kanna  fýsileika þess að setja upp náttúruminjasýningu í Perlunni.

Borgin og ráðuneytið eru sammála um mikilvægi þess að fullkanna kosti þess að setja upp slíka sýningu í Perlunni til a.m.k. 10 ára á meðan undirbúningur og stefnumörkun varðandi byggingu Náttúruminjasafns Íslands stendur yfir af hálfu ríkisins. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu gerir fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar ráð fyrir allt að 500 m.kr. stofnkostnaði við slíka sýningu í leiguhúsnæði.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum 21. júní s.l. að óska eftir fresti á söluferli Perlunnar til að kanna hvaða kostir væru fyrir hendi varðandi kaup borgarinnar á byggingunni. Til skoðanir gæti komið að borgin keypti Perluna en ríkið kostaði sýninguna og greiddi leigu.