Vængjasláttur sköpunar á Laugaveginum

Lokahátíð listhópa Hins hússins verður haldin á Laugavegi fimmtudaginn 19. júlí á milli klukkan fimm og sjö. Þar gefst vegfarendum tækifæri til að kynnast efnilegu ungu listafólki og njóta þess sem það hefur verið að skapa í sumar. 

Listhóparnir hafa síðastliðnar vikur glatt gesti og gangandi í borginni með svokölluðum föstudagsfriðrildum, en verkefni þeirra og uppákomur hafa verið afar fjölbreytt og skemmtileg. Nú fer störfum hópana að ljúka og síðasta tækiflærið til að njóta vinnu þeirra. Uppskeruhátíðin verður á þeim hluta Laugavegar sem lokaður hefur verið bílaumferð yfir hásumarið.