Krókódíll í Árbænum

Krókódíll tekur nú á móti þeim sem koma að leikskólanum Árborg í  Árbæ.  Hann var settur upp í tengslum við framkvæmdir á leikskólalóðinni næst skólahúsinu. Aðgengi út á lóðina var bætt með því að hækka land til samræmis við gólfhæð leikskólans. Þá var stórum sandkassa með bryggju komið fyrir, ásamt hinum myndarlega krókódíl og smáhesti, sem taka munu á móti börnunum þegar starfsemi leikskólans hefst að nýju eftir sumarfrí. 

Með framkvæmdunum í sumar lýkur fyrri áfanga við endurgerð skólalóðarinnar. Seinni áfangi verksins verður unninn næsta sumar. Með breytingum á hæðarsetningu lóðarinnar fæst betri nýting á henni og jafnframt verða leiktæki lagfærð og yfirborð endurgert að hluta. Þá verður lögð hjólabraut innan lóðarinnar og komið fyrir hliði á austurhlið girðingar til að opna gönguleið í skógarlund og bæta tengingu skólans við Elliðaárdalinn.

Nánari upplýsingar um endurgerð leikskólalóðar Árborgar er að finna í Framkvæmdasjá. Sjá upplýsingasíðu.

Öryggi í fyrirrúmi

Framkvæmdirnar á leikskólalóðinni við Árborg taka mið af áherslum undanfarinna ára í öryggismálum. Við endurgerð lóða hefur öryggismöl sem fallvarnarefni verið skipt út fyrir mjúk gerviefni, s.s. gúmmíhellur, gervigras, tartan og gúmmígrasmottur. Möl sem liggur á hörðu undirlagi skapar hættu á að fólki skriki fótur.  Einnig hefur lögun sandkassa og hæð skjólborða verið breytt til að halda sandi innan sandkassa til að hann stífli ekki niðurföll.

Skoða myndir og teikningu (Pdf 13,8 Mb).