Framlenging á sýningu vegna Ingólfstorg - Kvosin

Ákveðið hefur verið að framlengja opnun sýningarinnar vegna samkeppni um uppbyggingu Ingólfstorg/Kvosin. Opið verður virka daga (eftir 29. júlí) frá kl. 13 -17  fram til 15. ágúst en lokað verður föstudaginn 3. ágúst og mánudaginn 6. ágúst. Fram til 29. júlí er opið alla daga frá kl. 14 - 18.

Öllum samkeppnistillögunum hefur verið stillt upp til sýningar sem var opnuð um leið og tilkynnt var um verðlaunahafa þann 29. júní sl. Sýningin er til húsa að Thorvaldsensstræti 6, Landssímahúsinu og hefur staðið yfir síðan 29. júní sl.

Einnig hefur verið ákveðið að rýnifundur á vegum AÍ um samkeppnina verði haldinn fimmtudaginn 9. ágúst kl. 16 í Landsímahúsinu en allar samkeppnistillögurnar eru þar til sýnis til 15. ágúst.