Staðarskoðun og klaustursaga með sr. Þóri Stephensen fyrrum staðarhaldara í Viðey
Sunnudaginn 22. júlí mun sr. Þórir Stephensen fyrrum dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey leiða gesti í allan sannleika um sögu Viðeyjar. Fornleifauppgröftur í Viðey hefur leitt í ljós merki um mannvistir allt frá 10. öld. Í Viðey var reist klaustur árið 1225 og stóð það með miklum blóma fram á miðja 16.öld. „Faðir Reykjavíkur“, Skúli Magnússon fyrsti íslenski landfógetinn lét byggja Viðeyjarstofu sem embættisbústað sinn en Viðeyjarstofa er fyrsta steinhúsið sem byggt var á Íslandi og eitt elsta hús landsins. Skúli stóð einnig að smíði Viðeyjarkirkju sem var tekin í notkun árið 1774 og er næst elsta kirkja landsins á eftir Hóladómkirkju. Kirkjan er með upprunalegum innréttingum sem eru þær elstu á landinu.
Viðey er í fullum skrúða í júlí og staðarskoðun með sr. Þóri er upplagt tækifæri fyrir þá sem vilja fræðast um sögu Viðeyjar og njóta útiveru án langrar göngu. Ferjan fer frá Skarfabakka kl. 13:15 og 14:15 en gangan hefst kl. 14:30 við Viðeyjarstofu og tekur eina til eina og hálfa klukkustund.
Að göngu lokinni er kjörið að tylla sér niður í Viðeyjarstofu og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið.
Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1000,- fyrir fullorðna og kr. 500,- fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin. Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.
Tuesday walk in Viðey July 22nd. – Viðey´s history with
rev. Þórir Stephensen former manager of Viðey
Viðey´s history of thousand years will be revealed with rev. Þórir Stephensen former manager of Viðey island. Viðey was inhabited from soon after the settlement of Iceland around 900 AD. In 1225 a monastery was founded on the island by Þorvaldur Gissurarson, with the assistance of scholar/chieftain Snorri Sturluson. The first monastery in the southern quarter, it soon grew wealthy. At its zenith it was the second-richest monastery in Iceland, owning up to 116 estates.
In 1539 the monastery came to a dramatic end when it was raided by Danish soldiers, when the Reformation was imposed on the Icelandic church.
Skúli Magnússon was the first Icelander to be Treasurer, and for half a century he was one of the most powerful men in the country. He had Viðeyjarstofa (Viðey House) built as his official residence; it was completed in 1755. This guided tour with Þórir is a perfect opportunity to get an insight into Viðey´s history and enjoy the beautiful nature of the island.
The guided tour is in icelandic and it is free of charge. It starts at 14:30 by Viðeyjarstofa and takes about an hour and a half. Roundtrip to Viðey ISK 1000.- for adults.