Frestur til að skrá viðburð til þátttöku á Menningarnótt rennur út á miðnætti í kvöld!

Menningarnótt verður haldin í sautjánda sinn þann 18. ágúst næstkomandi. Menningarnótt er miðborgarhátíð í orðsins fyllstu merkingu því sjaldan skreytist miðborgin okkar litríkari og skemmtilegri skrúða en akkúrat þennan dag. Hvetjum við alla þá sem hyggjast standa fyrir viðburði/-um á Menningarnótt til að skrá sig til þátttöku á vefsíðu Menningarnætur www.menningarnott.is  

Það er von okkar að allir leggist á eitt við að skapa skemmtilega stemningu í miðborginni á Menningarnótt. Menningarnótt er hátíð sem allir borgarbúar skapa og upplifa saman, úti á torgum og götum miðborgarinnar, í bakgörðum eða söfnum, fyrirtækjum og ekki síst í húsunum í bænum.

Þemað í ár er „Gakktu í bæinn“ og vísar til þeirrar gömlu íslensku venju að bjóða að gesti sína velkomna og gera vel við þá. Þó að þemað megi gjarnan speglast í viðburðum hátíðarinnar þá er það ekki skilyrði þátttöku, tekið verður vel á móti öllum skrautlegum og skemmtilegum viðburðum.  



Sem fyrr sér Höfuðborgarstofa um almenna kynningu og samhæfingu dagskrárliða sem og útgáfu dagskrárbæklings Menningarnætur.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar Menningarnætur Guðmundur Birgir Halldórsson 590 1506 og  Karen María Jónsdóttir 590 1509.