Note: This news was published over two years ago.
Reykjavíkurborg er fyrsta sveitarfélagið í auðkenningarþjónustu Ísland.is
Reykjavíkurborg hefur nú tekið upp auðkenningu fyrir íbúa í gegnum Ísland.is. Er þetta liður í auknu samstarfi á milli Ísland.is og sveitarfélaganna. Fjöldi sveitarfélaga er væntanlegur í þessa auðkenningarþjónustu sem byggð er á veflykli Ríkisskattstjóra en einnig gefst íbúum kostur á að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Prófið að skrá ykkur inn á mínar síður á Ísland.is og skoða Íslandstorgið - en þar eru vefir ýmissa stofnana, sveitarfélaga og samtaka aðgengilegir beint án innskráningar. https://minarsidur.island.is/sso.