Sumarborgarhlið vekja athygli

Í morgun var komið fyrir hliðum á  sumargötunum Skólavörðustíg og Laugavegi til að afmarka  það svæði sem lokað er bílaumferð í sumar. Hliðin sem gerð eru úr reiðhjólum vöktu strax athygli erlendra ferðamanna sem stilltu sér upp til myndatöku við hliðið á Skólavörðustíg.



Styrmir og Benedikt á hverfastöð Reykjavíkurborgar voru snöggir að koma hliðunum fyrir og ljúka endanlegum frágangi í framhaldi af því. Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt og umhverfisfræðingur á Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar átti hugmyndina að hliðinu.

Laugavegi neðan Vatnsstígs og Skólavörðustíg neðan Bergstaðastrætis hefur frá 17. júní verið lokað fyrir  almennri bílaumferð og gildir  akstursbannið  fram yfir Menningarnótt 20. ágúst. Öll þjónusta við rekstraraðila fer fram um þvergötur fram til klukkan 11.00 alla virka daga. Sjá nánar í eldri  frétt þegar breytingin gekk í garð >>>  Sumar götur eru sumargötur