Barnadagur í Viðey 29. júlí 2012

Sunnudaginn 29.júlí verður barnadagurinn haldinn hátíðlegur í Viðey. Skemmtilegir trúðar heimsækja Viðey og leika við börnin og Lalli töframaður mun bæði sýna æsileg töfrabrögð á sviði og ganga um svæðið og búa til furðuskepnur í galdrablöðrum. Sveppi og Villi skemmta börnunum af sinni alkunnu snilld kl.15.30.  Viðey iðar af lífi og náttúran í fullum skrúða og því er upplagt að rölta um móana og tína saman fallegan blómvönd. Á Barnadag er haldin villiblómvandarkeppni og verða veitt vegleg verðlaun fyrir fallegasta villblómavöndinn. Margt er að sjá og ýmislegt sem þarf að rannsaka og því er tilvalið að taka sigti eða háf með í Viðeyjarferðina, svo hægt sé að skoða allar furðuskepnurnar og fjársjóðina sem finnast í flæðarmálinu. Hestaleigan Laxnes hefur slegið í gegn í Viðey í sumar og verður hún opin á Barnadaginn. Jafnframt verður yngstu börnunum boðið að bregða sér á bak og teymt undir þeim spottakorn í fylgd með mömmu eða pabba.

Fyrsta ferð í áætlun til Viðeyjar frá Skarfabakka er kl.11:15 og siglt er á klukkustundar fresti, korter yfir heila tímann allan daginn. Ferjutollur er kr.1000.- fyrir fullorðna, kr. 500.- fyrir 7 - 15 ára og ókeypis fyrir 6 ára og yngri.

Dagskrá Barnadags:

11:30 – 16:30 Nýr og spennandi matseðill í Viðeyjarstofu og grillaðar pylsur við Viðeyjarstofu

12:15 – 13:30 Trúðarnir mæta á Skarfabakka kl.12.15 og leika sér í Viðey með börnunum

13:00 –   Hestar teymdir undir börnum við hestagerðið

13:15 – 15:30 Lalli töframaður galdrar furðudýr og töfrar ýmislegt upp úr hatti sínum

14:45 – 15:00 Dómnefnd tilkynnir sigurvegara í villiblómvandakeppni

15:00 – 15:30 Barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Viðeyjarkirkju.  

15:30 – 16:00 Barnaskemmtun við Viðeyjarstofu. Sveppi og Villi leika á als oddi !

Childrens celebration in  Viðey - July 29. 2012

Sunday July 29. On this day Viðey welcomes in particular the yongest members of the family and the program of the day is designed to meet their needs. On Sunday a Magician will entertain children and who knows what will jump up from his hat! The infamous Villi and Sveppi will show the kids how to have fun and those who wish can try and go horseback riding on one of Viðey´s calm and friendly Icelandic horses. Viðeyjarstofa Café is open all day with its wonderful menu and hot dogs from the bbq. A perfect day for the whole family to enjoy an outdoor adventure! Ferry goes from Skarfabakki every hour at fifteen past the hour, first trip at 11.15. Price ISK 1000 for adults, ISK 500 for 7 - 15 years, free for 6 years and younger.